21.4.2009 | 00:22
Búin að velta því fyrir mér hvort ég eigi að blogga meira...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2009 | 03:03
Velti því fyrir mér að fara kannski að blogga aftur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.11.2008 | 12:46
Skyldi barnið hafa verið spurt álits?
Þetta finnst mér alveg magnað og það er víst ekki hægt að afskíra fólk þannig að barnið situr víst uppi með skírnina.
Ég lét skíra dóttur mína á sínum tíma en finnst mjög ótrúlegt að ég mundi gera það í dag. Á þeim tíma hugsaði ég bara ekkert útí þetta heldur ákvað að láta skíra hana bara afþví að "allir" gera það...
|
Presturinn breytti ekki siðferðilega rétt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2008 | 01:53
Já ég veit, ég veit...
Ég er alveg arfaslakur bloggari.....En ég kem þó annað slagið með soldið af tilgangslausum upplýsingum úr lífi mínu hingaði inn. Nýjustu stórtíðindin eru þau að ég er byrjuð í líkamsrækt, soldið sem aðdáendur mínir hefðu nú ekki trúað upp á mig. En vígin falla hratt þessa dagana. Ég hef alltaf verið annálaður antisportisti og er enn. Hins vegar var kominn tími á að lappa aðeins uppá skrokkinn og þess vegna ákvað ég að skella mér í átak með Erlu vinkonu.Við fórum í fyrsta skipti í dag og svitnuðum hressilega í klukkutíma. Við ætlum okkur að fara 3svar í viku til að byrja með og svo sér maður bara til hvort maður verður húkkt og fer oftar en það.
Kata vinkona er líka rosadugleg í sínu átaki og stefnum við ótrauðar á það að verða geðveikt flottar á nýju ári. Munum jafnvel stofna skinnyklúbb.... Allt að gerast sko.
Ég fór líka í foreldraviðtal um daginn útí skóla hjá Heklu og að sjálfsögðu er hún að standa sig 200% í öllu, alltaf jafngaman að koma útúr viðtalinu brosandi hringinn!! Heklan mín er að sjálfsögðu snillingur mikill.
Verður maður ekki að minnast aðeins á kreppuna fyrst maður er að þessu? Ég er reyndar löngu hætt að botna í því sem er að gerast í fjármálaheiminum á Íslandi, veit bara að einhvern veginn er allt að fara til fjandans og finn að maður þarf að velta hverri krónu mun oftar og neita sér um mun meira en maður hefur þurft að gera hingað til. Ingimar bró og nokkrir fleiri sem ég þekki eru búnir að missa vinnuna og nú er bara að krossa putta og vona að fólk finni einhverja vinnu.
Ingimar bró er annars soldið merkilegur drengur, hann er svo rólegur að það rennur varla í honum blóðið og hann hefur ekkert verið neitt svaka öflugur í því að segja sýna skoðun á hlutunum en núna er honum nóg boðið og mér krossbrá líka þegar ég var að horfa á fréttir um daginn og sé þar hann bróðir minn þramma niður Laugaveginn með skilti og alles. Ég verð að segja að ég er mjög stolt af honum núna.
Þetta er mynd sem ég stal af annari síðu en þarna sést Ingimar bróðir og félagar hans með skilti í mótmælunum. Brósi er þessi síðhærði sem er með skilti sem skyggir á andlitið á honum.
Alltaf svalt þegar menn taka afstöðu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2008 | 21:11
Það er ekkert mál að hætta að reykja...
Iss piss það er sko ekkert mál að hætta að reykja. Það er til dæmis minna en ekkert mál að reykja ekki á nóttunni enda er beinlínis lífshættulegt að reykja í svefni.
Það er líka ekkert mál að vera hættur að reykja þegar maður er í sturtu enda mundi sígarettan bara blotna og verða að mauki í sturtunni.
Þegar maður er ekki í sturtu og ekki sofandi heldur þá er þetta ekkert mál heldur fyrir utan það að manni langar STANSLAUST að reykja, en það er líka eina einkennið sem ég hef fundið fyrir hingað til.
Vinkona mín sagði mér að kaupa svona baby gulrætur, hún vildi meina að þær væru mjög gagnlegar þegar maður er að hætta að reykja. Nú ég fer í Bónus og fjárfesti í poka af gulrótum EN það er algerlega vonlaust að reykja gulrætur, það bara logar ekki í þeim (note to self: ég hlusta ekki á vinkonuna meir) Ég er reyndar með gulræturnar inni í ofni að reyna að þurrka þær, athuga hvort það verði auðveldara að reykja þær þá.
En sem sagt, það er ekkert mál að hætta að reykja!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.10.2008 | 21:50
Góður vinur kvaddur
Við pabbi tókum þá ákvörðun að kveðja góðan vin í dag. Þetta er vinur sem hefur fylgt mér allt of lengi og er farinn að vera baggi á mínum herðum. Þetta hefur samt verið góður vinur og alltaf staðið sig 100% í gegn um allt með mér.
Þegar ég hef orðið mjög reið hefur hann sest niður með mér og hjálpað mér að róa mig niður.
Þegar ég hef lent í tilfinningauppnámi hefur hann hjálpað mér að ná tökum á sjálfri mér.
Þegar ég er stressuð hefur hann hjálpað mér að ná tökum á ástandinu.
Þegar ég er pakksödd hefur hann aukið á vellíðan mína.
Svona mætti lengi telja....En einhverntímann tekur allt enda og líf mitt sem reykingamanneskja er senn á enda og við tekur líf sem reykleysingi.
Reykleysingjar eru fólk sem hefur til fjölda ára litið niður á mig og kvartað yfir að ég lykti illa og látið mig standa úti í kulda og hríð í tíma og ótíma.Reykleysingjar eru gjarnan líka ekki eins skemmtilegt fólk og reykmenn eða að minnsta kosti hef ég alltaf bondað meira við reykmenn en reykleysingja.
Ég stefni hins vegar að því að reyna að auðga líf reykleysingja með því að ganga í lið með þeim og er jafnvel að hugsa um að árangursblogga um þetta. Það er svo mikið um það að fólk bloggi um alls kyns baráttur sem það stendur í og því er gráupplagt að halda pressunni á mér með því að hafa þetta bara opinbert.
Svo er þetta líka svo sniðugt í kreppunni þar sem mér skilst að reykleysingjar séu mun betur staddir fjárhagslega en reykmenn.
Óska eftir háværum klappstýrum!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.10.2008 | 03:18
Ég er eins og ég er...
því hvernig á ég að vera eitthvað annað?
Er hér andvaka eins og svo oft áður (magnað hvað ég er gjörn á að vaka fram eftir öllu). Gjarnan þegar ég er á þessum næturvökum mínum að ég fer að hugsa svo margt.
Ég er til dæmis búin að vera að leita að sjálfri mér í nokkurn tíma núna og reglulega kemur þetta lag upp í hugann. Ekki að ég sé gay, langt því frá. Þetta lag er samt eitthvað svo satt og ég held að ég sé að sættast við það að ÉG er eins og ég er og get ekki verið neitt annað. Svo er það bara að sættast við það að vera ég, ég er nefnilega ansi fín eins og ég er. Ég veit ekki hvort að neinn botnar neitt í því sem ég er að reyna að segja hérna, en hér er ég og ég er eins og ég er og get ekki verið neitt annað. Þið hin verðið bara að sætta ykkur við það hvernig ég er!
Ég er búin að komast að því undanfarna mánuði að ég get gert hvað sem ég vil, að ég er sjálfstæð og dugleg kona og ég á bestu vini og fjölskyldu sem hugsast getur, verður lífið eitthvað betra en það?
En burtséð frá því að ég sé eins frábær og ég er þá átti ég frábært kvöld með fólki sem er nánast eins frábært og ég. Við vorum 5 saman, 11 ára, 17 ára, 26 ára, 30 ára og svo gamlinginn 32 ára og vorum að spila Guitar hero í kvöld og skemmtum okkur konunglega. Erum að spá í að gera þetta reglulega hér eftir. Kreppuskemmtun sem kostaði ekki neitt.
Er að massa kreppuna eins vel og ég get, er jafnvel farin að íhuga að gefa reykingar mínar upp á bátinn (neyðist eiginlega til þess).
Mig langar að skora á föður minn og bróður að hætta með mér. Hvað segið þið? Eigum við að gera þetta saman?
Fjúff nú er ég búin að blogga um að hætta sem eykur pressuna töluvert.
Bíð spennt eftir svari frá pabba og brósa (ágætis prófraun líka á það hvort þeir lesa bloggið mitt).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.10.2008 | 19:35
The bright side of life
Góðasti vinur minn stakk upp á því að skipta þjóðsöngnum út tímabundið fyrir þetta lag hér:
Ég er ekki frá því að ég sé bara sammála honum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2008 | 23:17
Hvað skal gera við geggjaða móður?
Þannig er mál með vexti að ég hef töluverðar áhyggjur af móður minni. Hún hefur nefnilega tekið ástfóstri við hvítt loðdýr og hefur skipt út íslenskri tungu fyrir skandinavískt jarm.
Ég fór í mat til foreldra minna í kvöld og það fyrsta sem móðir mín segir við mig er : "Mig langar að kynna þig fyrir nýjasta fjölskyldumeðlimnum, honum Lamba, hann er litli bróðir þinn núna". Ég svona hugsa með mér hvort að Ingimar bróðir hafi fengið sér permanett eða eitthvað í þeim dúr, en Ingimar er jú eini litli bróðirinn sem ég á svo vitað sé. En það reyndist nú alls ekki vera málið, móðir mín hélt á pínulitlu hvítu lambi, svona tuskudýri þið vitið.
Ég stirðnaði og horfði forviða á móður mína þar sem hún stóð með litla tuskudýrið í fanginu og strauk því og horfði á það með þvílíkri ástúð og umhyggju að við Ingimar bróðir fengum hroll og hugsuðum: "Svona hefur hún aldrei horft á okkur".
Faðir minn eldaði kvöldmatinn sem samkvæmt fyrirmælum móður minnar mátti alls ekki innihalda neitt lambakjöt til að særa ekki tilfinningar Lamba litla og á meðan sátum við, ég, Ingimar bróðir og Hekla litla stjörf og fylgdumst með móður minni klappa lambinu og jarma ástúðlega til þess. Síðan þegar pabbi kallaði á okkur í mat varð aldeilis uppi fótur og fit þegar móðir mín komst að því að ekki var gert ráð fyrir Lamba litla við borðið og linnti ekki látum fyrr en honum var komið fyrir við borðsendann með kálböggul á diski. Það varð lítið úr samræðum við borðið þar sem við sátum og fylgdumst með móður minni jarma við borðið og reyna að mata Lamba á kálblöðum.
Eftir matinn var sest yfir fréttirnar sem venja er og enn urðum við skelfingu lostin þegar móðir mín tók fyrir augun á Lamba þegar fjallað var um sláturtíðina og hafði á orði (og jarmi) að það væri skelfilegt að sýna svona fjöldamorð á kvöldmatartíma.
Við fjölskyldan erum ráðþrota og vitum ekki alveg hvað við eigum að gera í þessu......
Frásögnin er kannski ögn færð í stílinn en ljóst er að móðir mín á í óeðlilegu sambandi við lítið hvítt tuskulamb sem fylgdi með pakka af salernispappír sem gælir víst við rasskinnarnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Janúar 2006
- Desember 2005
- Nóvember 2005
- Október 2005
- September 2005
- Júlí 2005
- Júní 2005
- Maí 2005
- Febrúar 2005
- Janúar 2005
- Desember 2004
Það er spurning
Tenglar
Mínar síður
- Myndirnar mínar Hinar og þessar myndir úr einkasafninu
- Blikatíðindi Gamla síðan okkar!
- Kjaftaskurinn á Facebook Me on Facebook
Fjölskyldan
- Mamma bloggar Mamma mín
- Afríkufararnir Sápan um Villa og Guðmund hótelstjóra í Afríku!
- Palli Myndasíðan hans Palla frænda
- Jóhann Auðunn Músíkin hans Jóhanns frænda!
- Bjarnaland bjarni
Vinir og þannig fólk
Allslags fólk mér tengt
- Ofurlæðan Erla vinkona
- Sveina og Hákon Skátavinafólk
- Hafdís Rugludallur
- Emman Emma vinkona
- Púkastelpa Kata vinkona
- Guddý gella Guðný vinkona
- Anna Anna samstarfskona
Börnin
- Gabríel Temitayo Sætasti frændinn minn
- Óskar Ingi Sonur Jens og Hörpu
- Sigurður Kristinn Sonur Erlu og Helga
- Guðrún Björk Dóttir Emmu vinkonu
- Oddgeir Sonur Rutar vinkonu
- Grétar Karl Sonur Guðnýjar vinkonu
Eitt og annað
- Gamlir skátar úr skf. Haförnum Haförninn hæst allra svífur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 23548
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar








pirradur
soley
jonaa
trini
illa
ringarinn
toshiki
gudni-is
brynhildur
ormurormur
hjolastolasveitin